hvað segiði?
12.01.2007 19:11:52 / Agnes

Þetta gengur ekki

Við erum hættar með þessa síðu. hún er ekki allveg að gera sig ég veit ekki hvort að Brynja muni halda áfram með einhverja síðu ????? það er spurning

en allavega ég er byrjuð með mína eigin síðu og núna er ég allveg ein með hana. fyrsta bloggið var strax miklu skárra. það var lengra og persónulegra. þetta er ekki lengur bara í dag fór ég í kringluna það var gaman. Búið. ;) þessi síðan verður allt örðuvísi því lofa ég slóðin er www.blog.central.is/mysla2006   ALLIR AÐ KÍKJA ;)

bless og takk fyrir okkur


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 20:36:27 / Agnes

Allt of mikið að gera í þessum mánuði !!!!!

Þá er skólin loksins byrjaður aftur :D ég er bara í bóklegum tímum núna síðan í kórnum auðvitað ;) það eru kórbúðir núna 26 jan. það verður bara sjúklega gaman. þessa viku er ég búin í ökuskóla 1. síðan er ökuskóli 2. í æstu viku. síðan skriflegt bææilpróf í næstu viku líka 8|8|8| jújú ég á að ná þessu ;) síðan er líka að fara til tannlæknis núna á næstu vikum. hellingur að gera í skólanum þegar búið að setja fyrir próf í enku í næstu viku. svo má náttúrulega ekki gleyma vinnuni þannig það er helvíti mikið að gera hjá mér. En sona er lífið og ég mun komast í gegnum þetta.

það var gg gaman á seinustu helgi þá var partý heima hjá Gunnýu. það komu margir góðir vinir og það var bara klikkaðslega gaman :D

ÞAÐ ERU KOMNAR MYNDIR FRÁ PARTÝINU ;)

en ekki meira í bili.

kv.Agnes


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 23:48:59 / Brynja

Búin að fá tölvuna mína aftur!!!!!....:D

Hæ hæ

Þá er ég loksins búin að fá tölvuna mína:D:D:D:D:D:D og held ég sé svona nokkurn veginn ekki búin að vera gera neitt annað en að vera í tölvuni en ég fékk hana í gærkvöld...:D...

Hmmm.......Núna ætti ég að vera pakka niður og það er eitthvað sem ég er búin að vera reyna einbeita mér að í allan dag ( eða síðan ég vaknaði ) en það hefur ekki gengið mjög vel....:$:$:$..eins og flest ykkar vita þá er ég að fara á Sauðárkrók á morgun:S....:D...hlakkar pínu til en er auðvitað pínu stressuð líka..:$..ekki skrítið var á Laugum og þá kynntist ég helling af yndislegu fólki t.d. Elín, María, Edda, Svala, Heiða, Eva, Hekla, Alexandra, Anna signý, Ína, Vilborg og allir aðrir sem ég hitti þarna....en núna er ég að fara í nýjan skóla og þarf því að byrja allt upp á nýtt, kynnast fólki...:D:D:D:D...ég get ekki leynt því að spenningurinn er að fara með mig eða kanski ekki allveg, bara næstum því....:S...er að átta mig á því að á morgun er ég að fara á Sauðárkrók að hitta fullt af fólki sem ég þekki akkurat ekki neitt:S:S:S:S:S en ég bjargaðist á Laugum þannig þetta gengur allveg örugglega upp þarna líka....;P..mér finnst soldið skrítið að vera ekki að fara aftur á Laugar en ég er búin að lofa að fara þanngað í heimsókn;) það er ekki langt í bílprófið þannig að ég kanski keyri þanngað sjálf ( ég á afmæli 9.febrúar, fyrir ykkur sem ekki vitið það ). En allavega þá held ég að það sé komið að því að ég fari að pakka niður ( þó svo ég nenni því ekki ).

      ble ble

         Brynja.....

p.s. fyrir ykkur í hólminum þá fer ég um miðjan daginn á morgun...endilega kíkjið á mig og kveðjið mig áður en ég fer norður...;P

Eitthvað nýtt undir Dálknum Brynja....tjékkit....;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 17:31:10 / Brynja

Gleðilegt nýtt ár!!!

Hæ hæ

Þá er komin 5.janúar árið 2007 en ég ætlaði að vera löngu búin að blogga en ég hef bara ekki nennt því...:S:S:S:$.......Ég er bara búin að vera vinna í jólafríinu og seinasti dagurinn minn í vinnuni var í dag:D

Á áramótunum var ég og familýjan í Kópavoginum hjá Magna ( bróðir pabba ;) og Vallý ( konan hans )....Þar var auðvitað sprengt upp heilan helling en þarna voru öll systkyni pabba og fjölskyldur þeirra komin saman fyrir utan nokkra sem komust ekki...Sko ég keypti mér ekki neinar sprengjur þar sem ég var hvorteðer á höfuðborgarsvæðinu og þar er sko nóg að horfa bara upp í loftið þar sem að þetta fólk þarna kaupir allveg helling af sprengjum......

Undan farna daga hef ég bara verið í vinnuni og svo heima hjá syss og svo fer maður auðvitað út á kvöldin með fólkinu........

Og svo er ég að fá tölvuna mína í kvöld þegar að Doddi bróðir og kærastan hans Hjördís koma á eftir:D:D:D:D:D:D:Dhlakkar geðveikt til að fá tölvuna mína loksins aftur því ég hef ekki farið í hana síðan hún bilaði og það er þó nokkuð langt síðan það gerðist.......

Svo á sunnudaginn fer ég norður á Sauðárkrók en skólinn byrjar á mánudaginn......

held það hafi ekki verið meira..........

       ble ble

              Brynja


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 22:01:19 / Agnes

Flutt að heiman í 2 vikur

GLEÐILEGT ÁR ALLIR SAMAN.

Núna bý ég hjá Gunný og mun gera í tvær vikur. Í dag fórum við í bæinn og höfðum það gaman keyptum okkur eitthvað. ég keypti mér samt lítið því það er byrjað að leita að bíl fyrir mig :D því vonandi fæ ég bílprófið eftir mánuð get ekki beðið eftir því.

Skólin byrjar á mánudagin get ekki heldur beðið eftir því ég elska að vera í þessum skóla og hitta alla aftur eftir fríið verður gaman. 

ekkert meira að frétta í bili þannig við heyrumst

kv.Agnes


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 21:08:44 / Agnes

Jólin búin áramótin næst

Ég er komin heim eftir að hafa verið í Hólminum um jólin. Það ver rosalega fínt að vera þar við spiluðum og höfðum það gaman einns og venjulega. Á annann í jólum kom ég heim á Selfoss en stoppaði ekkert við ég kom á Esso og fór strax uppí næstu rútu til að fara uppí Árnes til Viðars. Það var æðislegt að komast til hans :D við kíktum eitthvað á ömmu hans og hún var algjört yndi eins og venjulega. Hún fór að sína mér allt sem hún hafði fengið í jólagjöf og margt fleirra. það er bara gaman að tala við hana hún hefur alltaf frá svo miklu að segja. síðan fórum við aftur heim og höfðum það notalegt. Ég tók rútuna frá Árnesi niður á Selfoss kl 7 í gær. Mamma átti afmæli og ég var búin að lofa að vera heima á áfmælinu. Til hamingju með afmælið mamma mín :*

Ég kláraði að opna jólapakkana mína í gær því ég tók þá ekki með í hólmin. Ég þakka fjölskyldu minni og vinum mínum fyrir þessar góðu gjafir. ég nenni ekki að gera eins og Brynja og telja þær allar upp og frá hverjum. þær voru allar góðar ;)

meira hef ég ekki að segja í bili

kv.Agnes


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 01:45:16 / Brynja

HVER VERÐUR NÚMER 1000!!!

Hæ hæ

Eins og þið sjáið kanski þá er talan í horninu að nálgast 1000 og sá sem verður númer 1000 má láta vita og ég geri þá örugglega smá dálk um það...!!!

Jólin kominn í gær en þau mættu á svæðið klukkan 18:00 í gær:D:D:D:D:D:D...ég var heima hjá systur minni ásamt Beggu, Magga, Hermanni, Birgittu, Pabba og Dodda. ég fékk þó nokkuð af jólagjöfum:D:D:D

Frá :

Beggu og co - tösku og kerti sem skiptir um lit:)

Pabba - baðslopp

Adda og co - sturtu sápu, bodylotion, sápu og baðbombu :)

Dodda og Hjördísi - sturtu sápu, bodylotion, sápu, baðbombu og mjúka sokka :)

Mömmu og kjellinum - peysu og dvd-myndina She's the man :)

Ömmu og Afa í Rvk - sturtu sápu, bodylotion og sápu :)

Bergdísi - Kúla sem skiptir um lit :)

Berglind - andlitsfarða og eyrnalokka :)

Agnes - eyrnalokka :)

Nonna - sokka og eyrnalokka :)

Elín - bolla :)

Eva - skraut á símann :)

Vinnuni - gler stjörnu :)

Alex - Kerti :)

Held það hafi ekkki verið meira en ég á eftir að fá nokkra pakka í viðbót:D:D:D:D:D:D

Jólin eru búin að vera fín ég var að vinna í gær til 4 og fór svo í sturtu og þegar klukkan var orðin 6 var borðað og svo opnað pakkana eftir það.....svo kíkti ég aðeins út með vinunum og fór svo heim að horfa á She's the man :D:D:D:D....

Svo svaf ég til eitthvað 4 í dag og fór þá á fætur og horfði á sjónvarpið og lagaði aðeins til í herberginu....borðaði svo hangikjöt:D:D:D:D og fór svo heim til Beggu syss og fórum við familýjan að spila...nú sit ég í tölvuni að blogga:D:D:D...

 eigið góð jól....

  kv. Brynja


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 19:55:58 / Brynja

Aðfangadagur...

GLEÐILEG JÓL....:D:D:D...

Kv. Brynja og Agnes


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 22:09:26 / Agnes

Stykkishólmur á morgun

Í dag vaknaði ég kl 10 og kláraði jólagjafirnar síðan byrjaði ég að hafa mig til fyrir útskriftina því kór Fsu þurfti að syngja síðan kl hálf 12 kom viðar til mín og gaf mér eina fallegustu rós sem ég hef séð.  Í gær vorum við búin að vera saman í mánuð og rósin var í tilefni af því og síðan bara vegna þess að honum langaði að gefa mér hana. :D

Við fórum uppí skóla kl 12 og þá var æfing síðan fengum við smá tíma til að slaka á. svo hófs athöfnin. við fórum 3 uppá svið og gekk rosalega vel.

í kvöld fór ég uppí búð ( Blaze ) og hjálpaði mömmu. Það er búið að vera allveg vitlaust að gera alla þessa viku.

Á morgun fer ég í Hólmin það verður gaman að sjá alla aftur það er orðið solldið langt síðan ég fór seinast. Síðan eru jólin á Sunnudagin ég get ekki beðið. Mér finnst samt svo skrítið það er eins og jólin hafi bara komið allt í einu. þessi önn er búin að líða óeðlilega hratt.

en ég heyri í ykkur seinna. ég mun blogga þegar ég kem aftur frá Hólminum ;) netlaust þar.

kv.Agnes og gleðileg jól ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 19:39:02 / Brynja

3 dagar í jólin....:)

Hæ hæ........

Ég hef nú ekki verið að gera annað en að hlaupa á veggi og hoppa í polla seinustu daga eða þannig...............DJÓK...:haha::haha::haha::haha::haha::haha:..........ekki allveg það sem ég hef verið að gera...........langaði bara að skrifa þetta...hihi...:haha:..

Hef bara verið að vinna og hanga heima hjá systur minni þó svo að ég sé flutt aftur í lágholtið......

Byrja að vinna kl.08:00 og vinn til kl.16:00, er sko að vinna í eldhúsinu á sjúkrahúsinu....en ég get lofað ykkur því að ég sé ekki um að elda matinn þannig það deyr enginn úr matareitrun þarna....hihi....

Jamm jólin eftir 3 daga....vá það er ekki langt þanngað til.........og ég er ekki búin að kaupa allar jólagjafirnar......:S:S:S:S:S:S:S:S.......en það reddast...:):D..á ekki margar eftir...

Svo var ég í vinnuni í dag og var sko að þrífa kæliskápinn að innan og svo kom Rita ( kona sem ég er að vinna með ) og byrjaði allt í einu að tala við mig og mér brá svo mikið að ég var í sjokki og svo sagði ég : Þú brugðaðir mér...:S:S:S......en annars er ég mikið að pæla í hvernig þetta er sagt og ætla því að gera nýja skoðunarkönnun.....

Þá verður það ekki meira.........

           ble ble

               Brynja.....

P.s. úrslit úr seinustu könnun :




» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 19:05:39 / Agnes

Prófsýningin búinn

Þá er ég næstum því komin í jólafrí ég á bara eftir að syngja með kórnum á útskriftini sem er 22 des. Ég náði öllum áfangunum :D og ætla að gera það sama á næstu önn ( geri mitt besta ) síðan var æfing hjá kórnum sú æfing var rosalega stutt tókum bara byrjunina á öllum lögunum og búið. Síðan hitti ég Viðar í dag það var æðislegt. var búin að sakna hans solldið mikið.

ég las þetta á netinu í gær og mér finnst að þið ættuð að lesa þetta líka þessi saga er þess virði

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar
sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.

Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "Þetta á eftir
að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".

Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég
vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir
jólin.

Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin,
hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá
tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á
dúkku upp við brjóstið sitt.

Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur.
Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum
"amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan
svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín" Svo
bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um.
Hún fór fljótlega.

Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og
spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta er dúkkan sem
systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin.

Hún
var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.

Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til
hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig
sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún en
núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar
hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.

"Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka
að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna
fyrir mig og gefið systur minni hana".

Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og
sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax.

Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi
hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. "Ég vil líka að
mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei"

"Ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi
segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".

Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég
teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við
strákinn "en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir
nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi nóg"

Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við
byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja
smá afgangur.


Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit
hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera
viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur
minni. Hann heyrði til mín"

"Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu,
en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa
rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós".

Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að
versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.


Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði
drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla
stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort
þsð ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi
ekki vakna úr dáinu.

Var þetta fjölskylda litla stráksins?


Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga
konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt
af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað
sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.

Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni af litla
stráknum og dúkkuna á brjóstinu.

Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem
þessi itli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann dag í dag,
erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá
honum.

 

ekki meira núna ;)

 

kv.Agnes


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 17:44:40 / Brynja

Komin heim, byrjuð að vinna og búin að fá að vita einkanirnar!!!!

Hæ hæ.....

Ég kláraði prófin á föstudaginn og eftir prófið náði mamma í mig og ég þurfti þá að kveðja hana Elínu, við fórum svo á Akureyri, Heiða fékk far með okkur og við skutluðum henni heim og svo fór ég í glerártorg með mömmu og hringdi svo í Maríu og við fórum niður í bæ á röltið og fórum í nokkrar búðir.

Svo á Laugardaginn kom ég heim, fór í jarðaförina hans Valla:cry: og svo fór ég heim í sturtu og svo til Reykjavíkur. Ég fór fyrst heim til ömmu og afa að borða og svo skutlaði amma mér í smáralind og þar hitti ég mömmu. Var í Smárlind til kl. 22:00, þá náði Örlygur í mig í smárlindina og við fórum aðeins á rúntin og svo í bíó á myndina The Holiday ( geðveikt góð mynd og mæli með að fólk sjái hana ;). Svo eftir myndina skutlaði hann mér til ömmu og afa, ég útnefni sjálfa mig mesta kjána og ljósku sem fyrir fynnst á landinu því ég læstist úti af því ég var að reyna opna hurðina með lyklinum en gat það ekki:$:$. Allavega þá skemmti ég mér geðveikt vel:D:D:D:D:D:D:D:haha:.

Svo á sunnudeginum komu Pabbi, Begga, Maggi, Hermann og Birgitta úr Hólminum og Doddi kom líka með í jólainnkaup. Ég náði ekki að kaupa allar gjafirnar. Fórum svo heim eftir að hafa borðað hjá Ömmu og Afa. Þegar ég kom í Stykkishólm þá var hringt í mig og ég beðin um að koma út og þegar ég steig út úr bílnum fyrir utan bónus þá réðust stelpurnar ( Berglind, Bergdís og Lilja ;) á mig og föðmuðu mig og strákarnir voru tilbúnir að grípa mig ef ég myndi detta. Svo fórum við bara að labba og ég endaði heima hjá mér og Berglind kom með og sátum við bara inní stofu að horfa á sjónvarpið og spjalla.

Svo fór ég í vinnuna í morgun og ég bakaði geðveikt góða köku:haha::haha:. svo núna er ég bara heima hjá henni systur minni í tölvuni ( þar sem hleðslutækið á tölvuni minni virkar ekki ) svo kíkti ég á einkanirnar mínar áðann og komst þá að því að ég náði öllu nema náttúrufræði.

      Þá held ég að þetta sé komið nóg í bili....

                ble ble

                    Brynja


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 20:20:47 / Brynja

Hleðslutækið á tölvuni bilað og skólinn að verða búinn!!!!

Góða kvöldið

ég sit upp á bókasafni því að hleðslutækið á tölvuni er bilað og treystið mér ég nenni örugglega ekki að blogga aftur fyrr en ég kem heim sem er á föstudaginn:D:D:D:D:D

Fór í tvö próf í dag félagsfræði og íslensku og þá eru bara 5próf eftir og svo heim:D:D:D:D

        ble ble í bili eða þanngað til ég kemst heim

                Brynja is out.....8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 23:34:16 / Agnes

Helgi upp í sveit

Ég samhryggist með öllum þeim sem þektu Valla. Ég veiti alla mína samúð.

Annars er helgin hjá mér búin að vera ein yndislegasta helgi sem ég man eftir. Á föstudaginn fór ég með Viðari heim til hans uppí sveit þetta er allveg yndislegur staður. Ef þú villt fá frið þá myndi ég fara þangað. Við fórum í kaffi til ömmu hans sem er allveg yndisleg hún er svo mikið rútt og allveg rosalega góð. Hún gerir líka allveg rosalega góðan mat. Síðan fórum við aftur heim og höfðum það nice. Öll helgin var bara á rólegu nótunum. Síðan núna í kvöld ( á sunnudegi ) voru aðventutónleikar í SelfossKirkju og söng kórin þar 3 lög. það heppnaðist allveg roslaega vel. það er líka bara yndislegt að syngja í þessari kirkju hljómburðurinn er æðislegur.

Á morgun verur farið í 3 ökutímann og svo farið að vinna.

En við heyrumst ;)

P.S. ég elska þig Viðar og takk fyrir helgina hún var æðisleg :*

kv. Agnes


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 22:39:10 / Brynja

† 28 látnir á árinu í bílslysum †..:'(..keyrið varlega og spennið beltin..!!!

Góða kvöldið.......

Þessi dagur byrjaði ósköp venjulega hjá mér.....vaknaði kl. 07:30 og svaf til kl. 07:50 og dreif mig framúr til að verða ekki of sein í tíma.......svo leið skólinn bara ósköp venjulega og í hádeginu hringdi ég í systur mína og allt í lagi með það.....Svo fór ég í seinasta tímann og þá var Birna kennari að leita að einhverju á netinu og svo heyrði ég hana allt í einu segja : "Banaslys á Stykkishólmsvegi". Vá ég fékk sjokk....Hugsaði bara hver gat það verið og svo fóru hún og annar kennari að tala eitthvað um Vilborgu og svo sá ég hjá Elínu að Vilborg hét á msn að Valli væri dáinn.......En já þessi ungi drengur ( aðeins 22 ára ) klessti á ljósastaur í nótt fyrir utan Stykkishólm...:cry::cry::cry: ég þekkti hann ekkert persónulega en vissi vel hver hann var.......hann var með Þorvaldi bróður mínum í bekk í grunnskóla og svo bjó hann í næstu götu og mamma þekkir líka mömmu hans........En ég votta öllum þeim sem Þekktu Valtýr ( Valla ) og fjölskyldu hans samúð mína og samhryggist þeim innilega......:cry::cry::cry: það er ekki auðvelt þegar að fólk deyr svona ungt og ég spyr afhverju þarf fólk að deyja svona ungt....??? Heimurinn er ekki samgjarn og lífið er stutt og erfitt......en svo virðist sem að við þurfum að lifa með því.......:cry:.......

Enn og aftur votta ég ykkur samúð mína.....

          Kv.  Brynja Ýr Ólafsdóttir...

P.S. kíkjið líka á bloggið hennar Vilborgar www.blog.central.is/vilborghrefna  


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill